10. apríl 2013

Menningarland 2013

Menningarland 2013 fer fram á Kirkjubæjarklaustri 11. og 12. apríl nk.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti, atvinnu- og nýsköpunarráðuneyti, Samband íslenskra sveitarfélaga, og Menningarráð Suðurlands í samstarfi við önnur menningarráð landsbyggðarinnar boða til ráðstefnunnar Menningarlandið 2013 – framkvæmd og framtíð menningarsamninga, sem fram fer á Icelandair Hótel Klaustri.

Megin tilgangur ráðstefnunnar er að ræða framkvæmd og framtíð menningarsamninga ríkis og sveitarfélaga, sem og samstarf ríkis og sveitarfélaga við menningarráðin sem stofnuð hafa verið um land allt á undanförnum árum í kjölfar menningarsamninganna. Samningarnir, sem eru sjö talsins í jafnmörgum landshlutum, fela í sér markvissan stuðning ríkissjóðs við menningarstarf og menningarferðaþjónustu gegn mótframlagi sveitarfélaga og einkaaðila í héraði. Menningarsamningarnir renna allir út á þessu ári og því þarf að meta reynsluna af þeim til að geta gert áætlanir um framhaldið, m.a. með tilliti til sóknaráætlana landshluta.

Fyrir hverja? Allir þeir sem á einn eða annan hátt tengjast menningarstarfi og menningarferðaþjónustu á Íslandi eru hvattir til að taka dagana 11. og 12. apríl frá og mæta á ráðstefnuna, enda verða umræðurnar þar grundvöllur að frekara samstarfi ríkis og sveitarfélaga um menningarsamningana.

Dagskrá Menningarland 2013 má sjá hér

8. janúar 2013

Umsóknir um Selið á Stokkalæk 2013

 Selið á Stokkalæk auglýsir nú eftir umsóknum um dvalarstyrki á árinu 2013. Með dvalarstyrkjum er átt við endurgjaldslaus afnot af Selinu tiltekinn tíma, ýmist til kennslu eða æfinga eða til tónleikahalds. Umsóknir skulu hafa borist fyrir 10. febrúar næstkomandi. Sótt er um á heimasíðunni stokkalækur.is undir flipanum Styrkir og bókanir. Á dagatali á forsíðu heimasíðunnar kemur fram hvaða dagar eru þegar bókaðir á árinu (merktir með bláu).

Sérstök athygli er vakin á því að styrkir til æfinga eða tónleikahalds verða einkum veittir ungum tónlistarmönnum sem eru að hefja feril sinn sem atvinnumenn í klassískri tónlist.

Þeir sem ekki fá dvalarstyrki í Selinu á Stokkalæk geta engu að síður átt þess kost að fá staðinn til afnota í samræmi við óskir sínar. Gjaldtaka fer þá samkvæmt gjaldskrá sem birt er á heimasíðunni undir flipanum Gjaldskrá. Unnt er að fá slík afnot af Selinu allan ársins hring.

Bent er á að Menningarráð Suðurlands hefur auglýst eftir umsóknum um verkefnastyrki með umsóknarfresti til og með 17. febrúar 2013, sjá nánar hér á heimasíðunni

Stokkalæk, 7. janúar 2013,

Inga Ásta og Pétur Hafstein

3. janúar 2013

Menningarráð Suðurlands auglýsir styrki til menningarmála

Menningarráð Suðurlands auglýsir eftirfarandi styrki fyrir árið 2013:

a) verkefnastyrkir

b) stofn- og rekstrarstyrkir

Umsóknarfrestur rennur út 20. febrúar 2013

Úthlutunarreglur og umsóknarform hér til hægri á síðunni.

V iðveruáætlun er í vinnslu og verður birt hér innan skamms.

Nánari upplýsingar veitir menningarfulltrúi Suðurlands Dorothee Lubecki í síma 896-7511 eða á menning@sudurland.is

Vinsamlega athugið að við höfum tekið í notkun nýtt skráningar- og umsóknarferli fyrir umsóknir um styrki.  Þeir sem hyggjast sækja um þurfa fyrst að nýskrá sig á vefnum með því að fara á þessa slóð, http://www.sunnanmenning.is/wp-login.php?action=register.  Að nýskráningu lokinni skrá notendur sig inn og lenda þeir þá á stjórnborðsíðu sinni.  Til að fara aftur á vefinn er nóg að smella á Menningarráð Suðurlands hlekkinn efst vinstra megin í gráu slánni.  Þaðan er svo hægt að smella á þær umsóknir sem notendur hyggjast fylla út.  Kerfið geymir umsóknir sjálfkrafa, ekki þarf að vista þær sérstaklega en notendur verða auðvitað að passa uppá að vera ávallt skráðir inná vefinn til að skoða umsóknir sínar.

20. nóvember 2012

Menningarmál á Suðurlandi – netkönnun

Í sambandi við stefnumótunarvinnu í menningarmálum á Suðurlandi er netkönnun um menningarmál í gangi sem allir eru hvattir til að svara. Netkönnunina er hægt að svara hér:

http://www.surveymonkey.com/s/Z7RZKCV

Vinsamlegast takið nokkrir mínútur til að svara spurningunum til að auðvelda okkur vinnuna. Frestur til að svara spurningum er til 30, nóvember 2012.

20. nóvember 2012

Fyrri forkeppni Uppsveitastjörnunnar á Borg á laugardag

Frumleiki, skemmtun og sköpunargleði vega þungt

Fjölmörg atriði eru nú þegar skráð til leiks í Uppsveitastjörnunni, hæfileikakeppni Upplits, en fyrri forkeppnin verður haldin í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi laugardaginn 24. nóvember kl. 15-17.  

Á meðal keppenda eru trúður, trommuleikari, söngvarar og fleira tónlistarfólk, sem mun etja kappi um að komast áfram í úrslit. Dómnefnd velur 2-4 atriði sem halda áfram og keppa til úrslita í mars á næsta ári. Frumleiki, skemmtun og sköpunargleði vega þungt þegar atriði eru valin í úrslit. Veitt eru verðlaun og allir þátttakendur fá auk þess viðurkenningu.

 Uppsveitafólk og aðrir gestir eru hvattir til að mæta og fylgjast með góðri skemmtun og hvetja sínar stjörnur áfram. Boðið er upp á hæfileikaríka keppendur, góðar veitingar, skemmtilega dómnefnd og fyrirtaks stemmningu.  

 Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og veitingar verða til sölu við vægu verði.

 Menningarráð Suðurlands styður Uppsveitastjörnuna – og einnig sveitarfélögin í uppsveitunum, sem leggja til félagsheimilin fyrir keppnirnar.

 Ekki missa af þessu –  allir velkomnir!